Fyrir nokkrum dögum fór í loftið nýr viðskiptahraðall sem ber heitið Firestarter, Reykjavik Music Accelerator og er ætlaður til að auka verðmætasköpun í íslensku tónlistarumhverfi. Að hraðlinum standa Tónlistarborgin Reykjavík, ÚTÓN og Icelandic Startups með stuðningi Senu Live, Samtóns og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Hvað er Firestarter Reykjavik Music Accelerator?
Firestarter er nýr viðskiptahraðall sem ætlað er að auka verðmætasköpun í íslensku tónlistarumhverfi. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er hraðall orð yfir ferli sem gengur út á það að hraða ferlinu frá hugmynd að fullbúinni vöru eða þjónustu. Allt að sjö verkefni verða valin til þátttöku og þau fá aðgang að fullbúinni vinnuaðstöðu, ráðgjöf og leiðsögn frá fjölmörgum sérfræðingum, fjárfestum og reyndum frumkvöðlum þeim að kostnaðarlausu yfir fjögurra vikna tímabil. Að hraðlinum standa Tónlistarborgin Reykjavík, ÚTÓN og Icelandic Startups með stuðningi Senu Live, Samtóns og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Afhverju var það stofnað og hverjum á það að þjóna?
Firestarter varð til í kringum hugmyndavinnu sem sneri að því hvað væri hægt að gera til að efla viðskiptaumhverfi tónlistarfólks hér á landi. Hraðallinn hefur verið um ár í þróun og við sem stöndum að verkefninu erum ótrúlega stolt að ýta því úr vör. Óskað er eftir umsóknum sem snúa að nýjum hugmyndum og verkefnum á sviði tónlistar og tæknilausna. Firestarter er þannig ætlað að þjóna tónlistargeiranum í heild, bæði tónlistarfólki, en líka umgjörðinni.
Hvað stendur verkefnið lengi?
Firestarter hefst í október 2019 og stendur yfir í fjórar vikur. Hraðlinum lýkur svo í nóvember á ráðstefnuhluta Iceland Airwaves með kynningum fyrirtækjanna á hugmyndum sínum fyrir fjárfestum, völdum ráðstefnugestum og öðrum lykilaðilum á sviði nýsköpunar og tónlistar.
Hverjir geta sótt um verkefnið?
Við erum að leita að frumkvöðlum sem vinna að tæknilausnum á sviði tónlistar, fyrirtækjum sem eru hluti af umgjörðinni, s.s. tónlistarhátíðum, tónleikastöðum, umboðsskrifstofum og bókurum og loks frumkvöðlum sem vinna að tónlistartengdum lausnum. Tekið er við umsóknum allt frá hugmyndastigi yfir í fyrirtæki í rekstri.
Hvert er markmið verkefnisins?
Firestarter miðar að því að rækta tónlistarfrumkvöðla, styrkja umgjörð viðskipta og efla tengsl tónlistar við umhverfi nýsköpunar og tækni. Markmiðið er þannig að gera umgjörðinni utan um tónlistargeirann á Íslandi hærra undir höfði, ýta undir frekari nýsköpun í tónlist og rækta tónlistarfrumkvöðla. Ætlunin er að Reykjavík geti verið í framlínunni þegar kemur að því að styðja við tónlistartengda nýsköpun.
Hvað er á döfinni og hvar getur fólk sótt um?
Á döfinni er að halda áfram mótun hraðalsins en þessa stundina erum við að leggja lokahönd á alla þá sem koma að verkefninu, bæði fyrirlesara og mentora og svo fyrirkomulag vinnusmiðja. Það er hægt að sækja um í hraðalinn og fá allar nánari upplýsingar á heimasíðunni www.firestarter.is – Opið er fyrir umsóknir til 30. ágúst næstkomandi.
Umræðan