Sigurvegarar Músíktilrauna 2019 er hljómsveitin Blóðmör en sveitin spilar taktfast og pönkað graðhestarokk.
Hljómsveitin var stofnuð 2016 en hún hélt ekki fyrstu tónleika sína fyrr en í apríl 2018. „Sigurinn kom okkur öllum mikið á óvart þar sem við ætluðum ekkert að sigra, bara að spila og hafa gaman,“ segja strákarnir, sem eru þessa dagana að leggja lokahönd á þröngskífuna Líkþorn en stefnt er að því að gefa hana út bráðlega. Þeir sem ætla að kíkja á hátíðina Aldrei fór ég suður um páskana gefst færi á að hlýða þar á hljómsveitina.
Umræðan