Sporfari gaf út sitt fyrsta lag og myndband fyrir stuttu en það ber heitið „Would you be there.”
Sporfari er sólóverkefni Egils Hübner sem starfað hefur með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina og spilað allt frá þungarokki til sveitaballapopps. Lagið sem um ræðir var upprunalega samið sem kassagítar-poppslagari en er kominn nokkuð langt frá þeirri hugmynd. Sporfari vinnur nú að plötu þar sem gömul lög eftir Egil eru endurunnin og sett í rafpopp útsetningar ásamt nokkrum glænýjum lögum.
Textan samdi Jóhann Ævar Grímsson sem þekktur er sem einn helsti handritshöfundur landsins. Egill samdi, útsetti og syngur lagið. myndbandið við lagið var leikstýrt og tekið af Sigurði Má Davíðssyni.
Lagið er einnig komið á Spotify
Umræðan