Framsækna rokkhljómsveitin In Siren gaf á dögunum út lagið „Hverfum” sem er jafnframt fyrsta lagið sem sveitin gefur út á Íslensku.
Hljómsveitin hefur verið í dvala undanfarin sjö ár eða síðan platan In Between Dreams kom út árið 2012 en sveitin kom saman aftur í upphafi árs og hófst handa við að semja nýtt efni. Útgáfunni verður fagnað rækilega með tónleikum á Gauknum þann 18. Júlí þar sem Captain Syrup og Progesteron munu einnig koma fram. Hægt er að sjá Facebook viðburðinn hér.
Umræðan