Útvarpsþátturinn Albumm var í loftinu síðastliðið miðvikudagskvöld á X-inu 977 eins og öll önnur miðvikudagskvöld. Gestur þáttarins að þessu sinni var mynd og tónlistarmaðurinn Margeir Dire en hann er einn helsti listamaður okkar Íslendinga og þó víðar væri leitað. Margeir gerir tónlist undir nafninu Manxego og er plata væntanleg frá kappanum.
Margeir kíkti í spjall í útvarpsþáttinn Albumm á X-inu 977 og kom hann með fulla tösku af tónlist til að spila í þættinum.
Spjallað var um list, tónlist og allt milli heims og helju.
Þáttarstjórnandi: Steinar Fjeldsted.
Umræðan