Bræðurnir Markús og Birkir mynda Indie electro hljómsveitina Omotrack. Í tilefni EP plötu þeirra Wild Contrast ætla bræðurnir að halda útgáfutónleika í kvöld 9. maí.
Omotrack hefur spilað og komið fram á tónlistarhátíðum víðsvegar um Ísland og erlendis frá og með árinu 2015. Platan Mono & Bright kom út árið 2016 og önnur plata þeirra Wild Contrast kom út í apríl 2019. Nafn hljómsveitarinnar er dregið af litla þorpinu Omo Rate í Eþíópíu þar sem þeir bræður ólust upp. Seinni plata þeirra Wild Contrast fjallar meðal annars um andstæður milli þessara tveggja heimalanda þeirra. „Í tilefni útgáfu EP plötu okkar Wild Contrast ætlum við að halda útgáfutónleika í Norræna húsinu 9. maí kl 21:00. Eftir tónleikana verður hægt að næla sér í eintak af plötunni í ýmsum útgáfum, á vínyl, með eþíópísku kaffi og fleira,“ segir Markús. „Við erum farnir að hlakka mikið til þar sem við erum búnir að undirbúa tónleikana vel og æfa stíft. Við hlökkum til að sjá sem flesta, þetta verður stuð,“ segir Birkir.
Nánari upplýsingar um tónleikna er hægt að finna á Facebook síðu Omotrack en einnig hægt er að fylgjast með hljómsveitinni á öllum helstu samfélagsmiðlum en það verður nóg um að vera hjá þeim sumar.
Omotrack á Facebook
Omotrack á YouTube
Omotrack á Instagram
Umræðan