Hljómsveitin Halleluwah sem er skipuð þeim Sölva Blöndal, sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Quarashi og Rakel Mjöll, lýsa tónlist sinni eins og svarthvítri bíómynd í anda David Lynch! Frumburður sveitarinnar lítur dagsins ljós í dag en Halleluwah blés til heljarinnar útgáfuteitis í gær í Mengi. Þar var margt um manninn og gríðarlega góð stemning. Mikil eftirvænting hefur verið eftir frumburði sveitarinnar en ekki örvænta því nú er hægt að skella sér út í næstu plötubúð og kaupa sér eintak!
Listakonan Karen Ösp Pálsdóttir vann í samstarfi við Halleluwah að seríu af málverkum í tilefni útgáfunnar. Verkin urðu að myndum fyrir hljómplötuna og smáskífuna en verkin sjálf voru til sýnis í Mengi í tilefni útgáfunnar. Karen er búsett í Bandaríkunum og þetta er fyrsta einkasýningin hennar á Íslandi.
Joseph Mattos Hall mætti í útgáfuteiti Halleluwah í gær og tók þessar skemmtilegu ljósmyndir.
Albumm óskar Sölva og Rakel ynnilega til hamingju með plötuna!
Umræðan