Fyrir skömmu sendi hljómsveitin Swizz frá sér fjögurra laga EP plötu sem ber heitið Hispur.
Sveitin hefur starfað lengi sem “cover” eða ábreiðu band og spilað á öldurhúsum, dansleikjum og einkasamkvæmum en þetta eru fyrstu frumsömdu lögin sem Swizz sendir frá sér. Eins og fyrr kemur fram eru lögin á plötunni fjögur, eitt popplag, eitt blúslag, eitt diskó lag og eitt rokk! Sveitina skipa Ingvar Valgeirsson syngur og spilar á gítar, Kristinn Gallagher bassaleikari og Helgi Víkingsson trymbill. Platan var tekin upp í Stúdíó Bambus en Stefán Örn Gunnlaugsson (Íkorni) stjórnaði upptökum og lék á hljómborð.
Platan kemur út bæði á Cd og í rafrænu formi á helstu streymisveitum.
Umræðan