Fyrir skömmu sendi tónlistarmaðurinn Floni frá sér sína aðra plötu en hún ber einfaldlega heitið Floni2. Á föstudaginn sem leið var plötunni fagnað með heljarinnar útgáfutónleikum í Austurbæ og var stemningin vægast sagt sturluð. Floni er án vafa einn vinsælasti tónlistarmaður landsin um þessar mundir en Floni2 hefur verið að fá frábærar viðtökur.
Mikið af þekktu tónlistarfólki steig á svið í Austurbæ og má þar t.d nefna Birnir, Joey Christ og GDRN svo sumt sé nefnt. Ljósmyndarinn Hafsteinn Snær Þorsteinsson kíkti á tónleikana og tók þessar skemmtilegu ljósmyndir fyrir hönd Albumm.is
Umræðan