Hljómsveitin Hatari er án efa ein vinsælasta sveit landsins um þessar mundir en frægðarsól hennar hefur risið hratt í gegnum allt Eurovision ævintýrið!
Eins og alþjóð veit eru Matthías, Klemens, Einar og co komin heim og var blásið til heljarinnar tónleika í Gamla Bíói á fimmtudaginn sem leið. Óhætt er að segja að öllu hafi verið til tjaldað en Hatari er ein allra besta tónleikasveit sem ísland á um þessar mundir. Sviðsframkoman og umgjörðin var upp á 10 og var stemningin í salnum rafmögnuð. Allt ætlaði um koll að keyra þegar „Hatrið mun sigra” fór í loftið og segja má að þakið hafi nánast rifnað af húsinu.
Brynjar Snær mætti á tónleikana og tók þessar frábæru ljósmyndir fyrir Albumm.is.
Hatari á Instagram
Brynjar Snær á Instagram
Umræðan