Næstu tónleikar sem jafnframt verða þeir síðustu á vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans, miðvikudaginn 23. maí á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu kemur fram tríó píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs. Tríó Sunnu hefur verið iðið við tónleikahald víða um heim og fengið frábærar umfjallanir fyrir diska sína. Einstakt jafnvægi ríkir í tríóinu þar sem má segja að hver meðlimur botni línur hinna og hefur melódísk nálgun tríósins í bland við krefjandi form unnið þeim marga aðdáendur. Von er á nýjum disk á árinu og mun efnisskrá tríósins verður bland af nýju efni og tónsmíðum af eldri diskum þeirra. Ásamt Sunnu koma fram bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson ásamt trommuleikaranum Scott McLemore.
Spennandi vordagskrá Jazzklúbbsins Múlans líkur með þessum tónleikum en heldur síðan áfram með spennandi sumardagskrá sem hefst 6. júní flest miðvikudags- og föstudagskvöld á Björtuloftum, Hörpu fram í ágúst.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og fara fram á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu og er miðaverð kr. 2500, 1500 kr. fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is
Múlinn er á sínu 22. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóðnum og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Umræðan