Möller Records gaf nýlega út plötuna Intemperie með raftónlistarmanninum Subminimal.
Intemperie er í senn sveim og tilraunakennd plata en hún inniheldur upptökur af lifandi sveim tónlist þar sem Subminimal skapar sinn einstaka hljóðheim með hljóðsörpum, hljóðgervlum og rafmagnsgítar. Subminimal hefur verið lengi að og er þekktur fyrir hárbeitta taktsmíðar og bylmingsbassa. Hann hefur komið víða fram í gegnum tíðina og endurhljóðblandað lög fyrir listamenn á borð við Justice og Samaris. Subminimal gaf út sína fyrstu plötu, When and How árið 2011 hjá Hidden Hawai forlaginu. Platan Microfluids var fyrsta útgáfa hans hjá Möller Records en hún kom út árið 2012, Sinian kom út árið 2014, Substance EP árið 2017 og nú Intemperie! Platan rennur einstaklega vel inn í sálarvitund hlustandans, ekki hika við að skella á play!
Möller Records á Facebook
Möller Records á Instagram
Subminimal á Facebook
Subminimal á Instagram
Umræðan