Þann 5. Apríl síðastliðinn mætti enginn annar en Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld í horn Hljóðfærahússins en þetta var í fimmta sinn sem Heimsókn í Hornið fór fram.
Þráinn er að öðrum ólöstuðum ein allra fremsta gítarhetja landsins, hefur gefið út fjölda platna með Skálmöld og síðasta áratuginn hafa þeir félagar túrað heiminn þveran og endilangan. Snæbjörn Ragnarsson eða Bibbi eins og flestir þekkja hann er einnig meðlimur Skálmaldar en hann spurði Þráinn spjörunum úr og var ansi kátt í horninu þennan dag!
Heimsókn í Hornið fer fram fyrsta föstudaginn í hverjum mánuði og er afar spennandi hver það er sem mætir næst í Hornið! Albumm mætti að sjálfsögðu á svæðið og úr varð þetta glæsilega myndband sem unnið er af Thank You Studio fyrir Albumm.is.
Hér fyrir neðan má hlusta á hljóðupptökuna í heild sinni.
https://soundcloud.com/albumm/heimsokn-i-horni-rainn-ur-skalmold
Hljóðfærahúsið á Instagram
Umræðan