Logi Geimgengill vinnur nú hörðum höndum í tónlistarverkefninu, Polarg4ng en út voru að koma tvö ný lög.
„Write” og „Í Gang” heita lögin og eru þau virkilega þétt með framúrskarandi grúvi. „Við erum komnir í gang, búnir að ganga útum allt land, það er nóg í gangi hjá okkur” segir Logi. Ný plata er í vinnslu en eins og meðlimir Polarg4ng segja „á plötunni verða ekkert nema alvöru þungavigtar smellir.”
Platan hefur verið talsverðan tíma í vinnslu og hefur vegurinn verið hálfgerð þrautaganga. Ekki hika við að skella á play og njóta gott fólk, þetta er snilld!
Umræðan