Tónlistarmaðurinn Jónas Sig var að senda frá sér plötuna, Milda Hjartað en nóg er um að vera hjá kappanum. Samhliða plötuna er hann einnig að senda frá sér bók sem inniheldur stuttar hugleiðingar og byggir á sama “concepti” og platan. Jónas lýsir plötunni sem Klassískri og “old-school” sem byggir á tengingu við frásögn, tilfinningu og hlýju.
Albumm.is náði tali af Jónasi og svaraði hann nokkrum skemmtilegum spurningum um plötuna, loftbelgsferðalag og innblásturinn svo sumt sé nefnt.
Hvar ert þú staddur og hvað er verið að bralla?
Reykjavík City akkúrat núna að preppa fyrir tónleikareisu norður á land sem hefst núna!
Það er allt að gerast en þú varst að senda frá þér plötu. Er hún búin að vera lengi í vinnslu?
Já, ég var að senda frá mér plötuna Milda hjartað. Ég hef verið að vinna hana í samstarfi við Ómar Guðjónsson síðustu tvö árin. Fjölmargir aðrir frábærir vinir og snillingar hafa komið að þessu verkefni og ég er sjúklega ánægður með útkomuna.
Hvernig mundir þú lýsa plötunni í einni setningu?
Klassísk, “old-school” músík sem byggir á tengingu við frásögn, tilfinningu og hlýju.
Ef þú gætir tekið með þér hvern sem er (lífs eða liðinn) í loftbelgsferðalag í kringum hnöttinn, hver yrði fyrir valinu og afhverju hann/hún?
Ég held það hefði verið sjúklega gaman að hanga í loftbelg með Alan Watts á ferðalagi kringum hnöttinn og ræða veraldarmálin. Við þyrftum örugglega að koma niður öðru hverju eftir Viskí og píputóbaki en mikið djöful sem það hefði orðið gott ferðalag.
Hvað veitir þér innblástur fyrir þína tónlistarsköpun og ertu alltaf í stuði til að semja tónlist?
Mesti innblásturinn minn er yfirleitt að tengja mig við 13-14 ára útgáfuna af sjálfum mér sem hékk í bílskúrnum alla daga og hamraði trommusettið eða spilaði lög inn á 4-track. Þar liggur alltaf einhver hreinn innblástur. Ég sest rosalega sjaldan niður til að semja lög. Lögin koma, þau flæða bara í gusum inn í hversdagsleikann. Þá þarf ég bara að muna eftir því að setja á upptöku í símanum og grípa augnablikið. Ég þarf hinsvegar að setjast niður til að klára lögin. Þar er ég alls ekki alltaf í stuði til að gera það og þarf stundum að hafa verulega fyrir því. Eða njóta aðstoðar góðra vina sem hjálpa mér að klára þá góðu hluti sem búið er að setja af stað.
Á að fylgja plötunni eftir með tilheyrandi tónleikahaldi?
Já, við höfum verið að spila töluvert. Ég er með fjögurra manna hljómsveit með mér skipaðri frammúrskarandi snillingum og nýt þess mjög að koma fram með þeim. Það eru Ómar Guðjónsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson og Tómas Jónsson. Við erum búnir að vera á ferðinni núna í Nóvember og síðan með Þorláksmessutónleika í Gamla Bíó. Á næsta ári stefnum við síðan að fylgja plötunni eftir með reglulegu tónleikahaldi og uppákomum í tengslum við plötuna auk þess sem ég er að gefa út bók með stuttum hugleiðingum í kringum sama concept og platan byggir á. Það verður spennandi að sjá þetta koma saman.
Hvað er framundan hjá þér og eitthvað að lokum?
Framundan er að fylgja eftir plötunni og bókinni eitthvað fram á sumarið. Svo bara að halda áfram að skapa. Elta flæðið og reyna að halda sér að mestu ofaní brunninum þaðan sem allt flæðir.
Umræðan