Tónlistarmennirnir Árni Vil og Teitur Magnússon hittust fyrir tveimur árum og drukku saman te. Ekki leið á löngu þar til þeir voru komnir með sinn hvorn gítarinn í fangið og eftir drykklanga stund varð lagið Something Awaits til.
Lagið er óður til andans og upphafning hversdagslegra tímamóta. Það er tileinkað öllum þeim sem hafa lokið stórum áfanga og til þeirra sem eru að hefja nýtt upphaf. Reykjavík Recordshop gefur lagið út á 7 tommu vínylplötu á meðan Airwaves hátíðinni stendur í byrjun nóvember næstkomandi.
Útgáfufögnuðurinn á sjálfan þakkargjörðardaginn 28. Nóvember á Hard Rock Café þar sem drengirnir slá upp Jólaforleik. Þeir stíga á stokk ásamt hljómsveitum sínum og telja í nýtt og eldra efni í bland við smekkleg jóla- og þakkargjörðarlög. Miðasala er í fullum gangi á Tix.is.
Umræðan