Út var að koma brakandi ferskt lag sem ber heitið „Basic” með tónlistarmanninum Jörgensen.
Í laginu talar Jörgensen djúpt um tilfinningar sínar gangvart lífinu og fer í sín persónuleg mál sem margir geta tengt við. Áður hefur kappinn sent frá sér lagið „2heimar” en lagið fjallar um heimana tvo, þegar allt gengur svakalega vel en á sama tíma gengur allt einhvernmegin illa.
Róbert eins og hann heitir réttu nafni er frá Kópavogi en hann er búinn að grúska í tónlist lengi og setti upp sitt fyrsta hljóðver aðeins 14 ára gamall. Með laginu Fylgir eitrað “cover” umslag sem Þorbjörn Einar hannaði. „Basic” er virkilega þétt lag sem margir eiga eftir að tengja við. Skelltu á play og njóttu!
Umræðan