Nú á föstudaginn kom út lagið „Mónika” með tónlistarkonunni Hildi og tónlistarmanninum Teiti Magnússyni en þau segja lagið vera sumarseiðing sem hittir beint í hjartarstað.
Tilurð lagsins var sú að Hildur Kristín Stefánsdóttir, Teitur Magnússon og Arnar Guðjónsson (Leaves og Warmland) lentu saman í herbergi í lagasmíðabúðum FTT í fyrra og þar fæddist Mónika, sem var samin og tekin upp öll á hálfum degi.
Sólin er komin á loft og er því ekkert annað í stöðunni en að skella þessu frábæra lagi á fóninn, eða bara skella á play!
Umræðan