Tónlistarkonan Rokky sendi á dögunum frá sér lagið Deux en út var að koma tónlistarmyndband við lagið.
„Stundum er mest „scary“ manneskjan í lífi þínu skuggi þinn og þú sjálf,“ segir Margrét Seema Takyar en hún leikstýrði og skaut tónlistarmyndbandið. „Mig langaði að segja þá ástarsögu í þessu myndbandi enda er lagið mega sexy, scary og powerful.“
Rokky vakti athygli þegar hún sendi frá sér smáskífuna My Lips í september á síðasta ári í kjölfar þess að hún seldi lagið í Esprit-auglýsingu.
Lagið Deux er flutt á frönsku en Rokky talar sex tungumál og hefur búið í fjórum löndum og segir textana sína oft endurspegla umhverfið sem hún er í hverju sinni. Hún segist elska franska elektróníska tónlist og er undir áhrifum frá tónlistarmönnum eins og French 79, Alice et Moi og Lescop.
Framundan mun Rokky halda tónleika í Berlín 14. júní og 20.júlí. Einnig mun hún koma fram á Secret Solstice í Reykjavík 21. og 22. júní.
Umræðan