Rapparinn 24/7 gaf út sína fyrstu plötu á föstudaginn og ber hún heitið FM 24/7.
Kappinn sækir innblástur í svokallað gangster-rapp og ber platan þess keim. Hann vinnur lögin sín ásamt Tómasi Gauta, BNGRBOY og Ízleifi. 24/7 fær til sín nokkra góða gesti á plötunni en þar má meðal annars nefna Birgi Hákon, Birni, Joey Christ, Young Nigo Drippin’, Daniil, Gvdjon og Siffa.
Platan er mikil snilld og er allt á henni til fyrirmyndar. Nú er ekkert annað í stöðunni en að “crank up the bass” og láta tónlistina taka þig í eitt allsherjar ferðalag!
Umræðan