Fyrir ekki svo löngu gaf akureyrski tónlistarmaðurinn Stefán Elí út tónlistarmyndband við hans nýjasta lag „Pink Smoke.”
Myndbandið er listrænt og tjáir ótal tilfinningar en Stefán fer með einleik í verkinu og leiðir hann áhorfendur í gegnum mismunandi kafla lagsins með tilfinningaríkri framkomu sinni. Atburðarásin er á þann veg að sjaldan er mjög skýrt nákvæmlega hvað er á seyði eða hvernig þær aðstæður sem sjást komu til og þar af leiðandi er skilið eftir mikið rými til túlkunar.
Stefán Elí hefur verið afskaplega duglegur við útgáfur síðastliðna mánuði og einnig hefur hann komið talsvert mikið fram á tónleikum. Frá og með október 2018 hefur Stefán gefið út sjö lög sem má finna á öllum helstu streymisveitum veraldarvefsins. Í sumar hefur Stefán Elí spilað mikið og þ.á.m. haldið eigin tónleika í Davíshúsi og komið fram á Sparitónleikum Einnar með öllu á Akureyri þar sem hann spilaði fyrir framan mörg þúsund manns.
Kvikmyndargerðarmaðurinn Tjörvi hefur verið á fullu flugi þegar kemur að myndbandagerð sinni og ljósmyndun en hann vann myndbandið sem rætt er um. Tjörvi hefur t.d. tekið upp og klippt efni fyrir ótal fyrirtæki, séð um myndbandstökur tónleika og tónlistarflutnings, skapað eigin myndbönd og vinnur nú að sjónvarpsþáttunum “Ég um mig” þar sem svo skemmtilega vill til að Stefán Elí er annar þáttastjórnenda.
Stefán Elí á Facebook
Stefán Elí á Instagram
Umræðan