Krummi Björgvinsson hefur komið víða við en á sínum tíma gerði hann allt brjálað ásamt hljómsveitinni sinni, Mínus. Sveitin skaust hratt upp á stjörnuhimininn og fljótt urðu piltarnir “household name” í erlendum tónlistarblöðum eins og t.d Kerrang svo fátt sé nefnt.
Stórar hljómleikaferðir út um allan heim fylgdu í kjölfarið sem vakti enn meiri athygli á bandinu, enda ekki furða því Mínus er eitt besta band sem Ísland hefur af sér alið. Kerrang byrti ansi skemmtilega teiknimynd eða skrítlu af Krumma en þar er hann í öllu sínu veldi, ber að ofan með heljarinnar húfu á höfðinu.
Krummi byrti skrítluna á Facebook síðu sinni en Frosti Jón Runólfsson aka Frosti Gringo skellir í ansi skemmtilegt komment undir færslunni: „Then Velvet Revolver stole your look” og Krummi tekur undir: „Jebb! Í alvöru talað haha.
Velvet Revolver var súpergrúbba frá Bandaríkjunum sem innihélt goðsagnir eins og Slash og Duff Mckagan úr Guns N Roses og söngvarann Scott Weiland úr Stone Temple Pilots. Við getum öll verið sammála um að fatastíll Krumma og Scott eru ansi svipaðir og að því sem Albumm kemst næst var Krummi fyrri til að skarta hattinum góða og er þetta því alls ekki fjarri lagi! Hver getur dæmt fyrir sig en eitt er á hreinu að Krummi hefur og mun alltaf lúkka!
Hér fyrir neðan má sjá Mínus taka lagið The Long Face á Reading Festival árið 2004.
Umræðan