Leikarinn og tónlistarmaðurinn Pétur Óskar, Oscar Leone, var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Superstar. Lagið verður á tilvonandi plötu sem Pétur er að vinna í með Arnari Guðjóns Pródúsent.
Pétur hefur komið víða við en margir kannast við hann t.d. í Ófærð 2, Andið eðlilega og fleirum myndum ásamt að hafa einnig leikið erlendis. Nú er kappinn byrjaður á sínum tónlistarferil og segir hann að hann sé mjög spenntur að gefa út þessa tónlist og gefa henni líf.
Ásamt laginu fylgir glæsilegt tónlistarmyndband í leikstjórn Einar Egils.
Umræðan