Snælda er nýtt ókeypis námskeið fyrir ungar tónlistarkonur á aldrinum 16-20 ára þar sem þeim verða kennd helstu undirstöðuatriði við lagasmíðar. Námskeiðið undirbýr þær fyrir tónlistarferil þeirra og fá þær aðstöðu í 101derland hljóðverinu þar sem þeim verður kennd undirstöðuatriði í Ableton live, helstu tækniatriði við hljóðupptökur verða kynnt, veitt aðstoð við tónlistarsköpun auk þess sem þær fá innsýn í tónlistarbransann frá faglegu sjónarhorni.
Megin markmið námskeiðsins eru kennsla á sjálfstæðum vinnubrögðum við lagasmíðar sem mun án efa nýtast þeim við að koma sér á framfæri bæði hérlendis og erlendis. Námskeiðið verður haldið 18. febrúar til 18. mars 2019 í höfuðstöðvum 101derland að Hverfisgötu 105. Kennt verður þrisvar sinnum í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, og stendur hver lota yfir í 3 klukkustundir.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, Logi Pedro Stefánsson og Jófríður Ákadóttir (JFDR) verða aðal leiðbeinendur námskeiðsins. Aðrir listamenn sem vinna undir hatti 101derland koma líka við sögu, t.d. Jóhann Kristófer Stefánsson (Joey Christ), rappararnir Birnir og Flóni, Young Karin og Sturla Atlas.
Námskeiðið er ókeypis og verður pláss fyrir 10 stelpur á aldrinum 16-20 ára. Hægt er að sækja um með því að senda póst á info@101derland.com merkt: SNÆLDA – umsókn. Umsókninni skal fylgja nafn, kennitala, reynsla í tónlist, helstu áhrifavaldar í tónlist og linkur á tónlist ef til er.
Frestur til að senda inn umsókn er 3. febrúar.
Umræðan