Ekki missa af ógleymanlegri bíóupplifun með Slayer í þessari einstöku samsetningu af stuttmynd og tónleikum ásamt sérstöku aukaefni í frábærum hljóð-/myndgæðum miðvikudaginn 6. nóvember kl.19:30 í Bíó Paradís – eingöngu þetta eina kvöld. Tónleikarnir eru sýndir samtímis í kvikmyndahúsum um allan heim!
Hljómsveitin Slayer er fyrir löngu komin á lista yfir eina mestu “thrash-metal” hljómsveit sögunnar – en böndin sem oftast eru kallaðar Risarnir fjórir innan þessarar tónlistarstefnu og hafa haft mest áhrif eru Slayer ásamt Metallica, Megadeth og Anthrax. Nú getur þú upplifað bæði heimsfrumsýningu á stuttmyndinni “SLAYER: The Repentless Killogy” sem aðdáendur hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu ásamt sérstöku aukaefni frá hljómsveitarmeðlimum og stórfenglegum tónleikum bandsins sem teknir voru upp í Los Angeles Forum tónleikahöllinni.
Umræðan