Íslensku tónlistarverðlaunin fara fram í Hörpu miðvikudaginn 11. Mars næstkomandi.
Veitt eru verðlaun fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2019 og rennur skilafrestur út á miðnætti á morgun 15. janúar. Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna verða kynntar um miðjan febrúar.
Á heimasíðu Íslensku tónlistarverðlaunanna, www.iston.is. má finna allar helstu upplýsingar um verðlaunin, reglur, samstarfsaðila, sögu hátíðarinnar og lista yfir verðlaunahafa fyrri ára og þá sem hlotið hafa tilnefningar. Albumm.is ásamt lesendum sínum munu líkt og fyrri ár velja besta myndband ársins 2019 og mælum við að sjálfsögðu með að sem flestir taki þátt!
Við viljum minna á að umsóknarfrestur vegna innsendinga til Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2020 rennur út á miðnætti 15. janúar. Munið að skrá ykkar verk HÉR.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband af hljómsveitinni Sigur Rós taka lagið Untitled #7 (Dauðalagið) á Íslensku Tónlistarverðlaunum árið 2000.
Umræðan