Fyrir skömmu sendi tónlistarmaðurinn Hlynur Jakobsson frá sér plötuna Ambono 4 og er þetta fjórða hugleiðsluplata hans sem er öll tekin upp live.
Engin tölva var notuð við gerð hennar og mörg “sound” eru tekin af gömlum sampling CD´s eða Hljóðsmala diskum sem Hlynur gróf upp úr kjallaranum hjá sér. „Mér fannst þetta skemmtilegt tvist að taka upp plötuna á eins einfaldan hátt og í eins miklu flæði og hægt var. Platan tók ekki nema viku í vinnslu enda um algjört flæði að ræða.” Hinar Ambiant plötur Hlyns hafa notið vinsælda í slökunartímum landsins og mun þessi væntanlega rata inn á lista þar.
Umræðan