Íslenska kvikmyndin Eden eftir leikstjóran Snævar Sölvason var frumsýnd þann 10. maí síðastliðin.
Eden er villt blanda af spennu og kómík en hún segir frá parinu Lóu og Óliver sem eru bæði á flótta þegar þau kynnast, hann frá réttvísinni en hún frá fortíðinni. Þau uppgötva fljótlega að þau hafa samskonar langanir í lífinu og fella hugi saman og þrái ekkert heitar en að elta drauma sína. En til að láta drauma sína rætast þurfa þau að afla sér peninga og með hjálp litríkra félaga Lóu komast þau í samband við undirheimabarón sem ræður þau í vinnu til að selja fíkniefni á götum Reykjavíkur. Í fyrstu gengur samstarfið vel og ástin blómstrar sem aldrei fyrr, en þegar þau kynnast ógnvænlegum hliðum undirheimanna ákveða þau að taka málin í sínar hendur og hefst þá atburðarás þar sem allt er lagt undir.
Með aðalhlutverk í Eden fara Telma Huld Jóhannesdóttir, sem hefur getið sér gott orð á leiksviðinu og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við Illsku, Webcam og Rétti, og Hansel Eagle en hann fór með aðalhlutverkið í gamanmyndinni Albatross sem kom út árið 2015. Myndin skartar einnig leikurunum Arnari Jónssyni og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur en önnur hlutverk eru fyrst og fremst skipuð ungum og upprennandi leikurum. Þar á meðal eru Tinna Sverrisdóttir, Gunnar Maris, Blær Hinriksson, Valgeir Skagfjörð, Einar Viðar G. Thoroddsen, Hjalti P. Finnsson og Róbert Gíslason, yngsti sonur leikaranna þjóðkunnugu Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars.
Eden er önnur kvikmynd leikstjórans Snævars Sölva Sölvasonar en hann á að baki gamanmyndina Albatross, sem sýnd var í kvikmyndahúsum Senu, og er þetta því í annað sinn sem hann og Hansel Eagle leiða saman hesta sína.
Snævar sótti hart að því að fá Arnar Jónsson til að fara með hlutverk “vonda karlsins” í Eden, en Arnar talaði fyrir alla helstu vondu karlana í Disney teiknimyndum sem Snævar ólst upp við á tíunda áratugnum, þar á meðal Jafar úr Aladdin og Skara í Konung Ljónanna. Snævar talaði einnig við aðalleikarana tvo, þau Telmu Huld og Hansel Eagle, um leið og hann fékk hugmyndina af sögunni (áður en handritaskrif hófust), en hann sá enga aðra nema þau tvö í hlutverkum þeirra Lóu og Ólivers. Hansel Eagle þekkti Snævar áður en Telmu hafði hann aldrei hitt.
Tónlistina í myndinni samdi Magnús Jóhann Ragnarsson og lagasmíðar eru í höndum Þormóðs Eiríkssonar. Magnús og Þormóður hafa á síðustu misserum verið mjög eftirsóttir þrátt fyrir ungan aldur. Magnús hefur spilað með ótal tónlistarmönnum, þar á meðal Friðriki Dór, Sölku Sól, Moses Higtower, GDRN, Flóna og samið kvikmyndatónlist fyrir stuttmyndir. Þormóður hefur gert garðinn frægan undanfarið í íslensku hiphop-senunni og samið lög fyrir Jóa P og Króla, Herra Hnetusmjör, Huginn og marga aðra. Í Eden fékk Þormóður til liðs við sig nýstirnin Lukku Láka og Countess Malaise sem eiga lög í myndinni.
Umræðan