Anna María Björnsdóttir samdi tónlist við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson, orti til ömmu hennar, Elínar Maríusdóttur, yfir 60 ára tímabil. Tónlistina er að finna á plötunni Hver stund með þér sem kom út árið 2015.
„Ég samdi tónlistina við ljóðin eftir að amma og afi voru bæði látin. Enginn vissi af þessum ljóðum fyrr en þau voru komin á gamals aldur. Ljóðin fela í sér fallegan boðskap um ást sem getur vaxið og dafnað í heila mannsævi.”
Anna María ásamt hljómsveit verður með tónleika í Iðnó þann 20.janúar kl 20:00 og eru þeir haldnir í tilefni þess að heimildarmynd um ástarljóðin og verkefnið verður frumsýnd á RÚV þann 15.janúar kl 20:20. Myndin var sýnd á RIFF árið 2015. Leikstjóri myndarinnar er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Hægt er að nálgast miða á tix.is
Hljómsveitina skipa: Anna María Björnsdóttir söngur og píanó, Andri Ólafsson bassi og söngur, Magnús Trygvason Eliassen trommur, Gunnar Jónsson gítar og söngur, Grímur Helgason klarinett, Margrét Arnardóttir harmonikka, Unnur Jónsdóttir selló, Björn Már Ólafsson sög, Jesper Pedersen söngur.
Anna María á Facebook
Umræðan