Tónlistarkonan Matthildur var að senda frá sér glænýtt og afar ferskt lag sem ber heitið „There.”
Áður hafa lögin „Wonder” og „Heartbeat” litið dagsins ljós og fengu þau frábærar viðtökur! Nýja lagið er rólegt og eitursvalt og það er eitthvað við lagið sem fær mann hreinlega til að skella því á “repeat.” Margt er framundan hjá þessarri ungu tónlistarkonu og bíðum við afar spennt eftir framhaldinu. En þangað til skellum við There á fóninn og svífum inn í hennar undurfagra hljóðheim.
Umræðan