Tónlistarhátíðn Sónar fór fram um helgina sem leið en stappað var í Hörpunni og stemningin vægast sagt rafmögnuð! Rúmlega 50 hjómsveitir og listamenn komu fram á hátíðinni í ár og var m.a. bílakjallara hússins breytt í næturklúbb.Aldrei hafa fleiri erlendir gestir sótt Sónar Reykjavík heim. Meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni í ár voru bandaríski rapparinn Danny Brown , breska danssveitin Underworld og hin upprennandi grime stjarna Nadia Rose – ásamt því nýjasta og veigamesta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða.
Hátíðin fór einkar vel fram í ár og mátti sjá bros úr hverju andliti! Eins og fyrr hefur komið fram var stemningin rafmögnuð en óhætt er að segja að stuðbolltarnir í Underworld hafi vægast sagt tryllt líðinn!
Hafsteinn Snær Þorsteinsson mætti á svæðið og tók þessar frábæru ljósmyndir fyrir hönd Albumm.is
Umræðan