KRAUMUR OG HÖNNUNARSJÓÐUR AURORU BJÓÐA Í GÖTUPARTÝ
Kraumur tónlistarsjóður og Hönnunarsjóður Auroru setja upp pop-up borg og bjóða á tónleika á HönnunarMars í ár, laugardagskvöldið 14. mars, þar sem fjölmargar hljómsveitir og tónlistarmenn koma fram í porti Hafnarhússins. Meðal þeirra sem stíga á stokk eru Retro Stefson, Sin Fang og Samaris sem allar hafa fengið Kraumsverðlaun fyrir verk sín. Einnig koma fram; Snorri Helgason, Bjartey & Gígja úr YLJU, Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn. Hönnun portsins er í höndum Theresu Himmer og Brynhildar Pálsdóttur.
Viðburðurinn, sem lýsa mætti sem götupartý með tónleikum, er stefnumót tónlistar og hönnunar þar sem tónlistarmenn, hönnuðir og arkitektar mætast í pop-up borg framtíðarinnar. Um er að ræða samvinnuverkefni Kraums tónlistarsjóðs og Hönnunarsjóðs Auroru sem síðustu ár hafa unnið með og að framgangi fjölda íslenskra tónlistarmanna og hönnuða, hérlendis sem erlendis.
Í porti Hafnarhússins er verkefnið Hæg breytileg átt með sýningu á HönnunarMars sem varpar ljósi á íbúðir og hverfi framtíðarinnar, en þetta kvöld umbreytist sýningin í lifandi framtíðarborg þar sem á einni götunni er blásið til partýs!
Viðburður: Götupartý – Pop-up borg og tónleikar á HönnunarMars
Staður: Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
Tími: Laugardagskvöldið 14. mars kl 21:00
Allir velkomnir. Engin aðgangseyrir.
Hljómsveitir og hljómsveitir sem koma fram eru:
Retro Stefson, Sin Fang, Samaris, Snorri Helgason, Bjartey & Gígja úr YLJU, Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn
Hönnun kvöldsins er í höndum:
Theresu Himmer og Brynhildar Pálsdóttur
Allir út á götu! // Sjáumst úti á götu! // Partý í götunni, látið það berast!
“Það er gaman að sjá íslenska tónlist fá svona veigamikinn sess á HönnunarMars í ár, og að Kraumur eigi þátt í þeirri þróun. HönnunarMars hefur eflst og stækkað með hverju árinu og með þessu uppátæki, götupartýi og veglegum tónleikum, viljum við búa til skemmtilega stemmningu á lokakvöldi hátíðarinnar – og koma tónlist framfæri í því spennandi umhverfi sem HönnunarMarsinn er. Dag hvern á sér stað mikilvægt samspil íslenskrar tónlistar og hönnunar – t.d. með hönnun á plötuumslögum og öðrum afurðum tónlistarmanna – og því gaman að þessir geirar mætist á viðburði sem þessum. Kraumur hefur unnið með og stutt við mikið af þeim listamönnum og hljómsveitum sem koma munu fram á tónleikunum, en annars erum við fyrst og fremst að horfa til þess að setja saman skemmtilega og spennandi tónlistardagskrá, í umhverfi þar sem verið er að skapa eitthvað nýtt og spennandi. Heilli pop-up borg og götupartý þar sem allir eru velkomnir!”
– Eldar Ástþórsson, meðlimur í stjórn Kraums tónlistarsjóðs
“Það er gaman að geta tekið þátt í að leiða saman tónlist og hönnun á HönnunarMars í ár. Það hefur kraumað vel í undirbúningi götupartýs Kraums og Hönnunarsjóðs Auroru og ekki er séð fyrir endann á því hvað þetta samstarf hönnunar og tónlistar getur leitt af sér!”
– Guðrún Margrét Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru
Umræðan