Ingi Bjarni Skúlason píanóleikari og tónsmiður gefur út sýna þriðju plötu sem ber nafnið Tenging. Platan er nú fáanleg í helstu plötuverslunum og er einnig aðgengileg á helstu streymisveitum.
Tónlistin á plötunni er samin á síðustu tveimur árum (2016 – 2018.) Á þessu tveggja ára tímabili kannaði Ingi Bjarni ýmsa þætti hvað varðar tónlist og tónlistarsköpun. Má þar nefna flæði, frelsi, sjálfstraust og innsæi. Við lagasmíðina efldi hann tengingu sína við tónlist og leyfði innsæinu að ráða för í stað þess að stóla á fræðilega tónlistarþekkingu.
Platan var hljóðrituð ásamt hæfileikaríku tónlistarfólki í Skandinavíu og er gefin út af norsku plötuútgáfunni Losen Records.
Hljómsveitina skipa: Ingi Bjarni Skúlason (Ísland) – píanó og tónsmíðar, Merje Kägu (Eistland) – gítar, Jakob Eri Myhre (Noregur) – trompet, Daniel Andersson (Svíþjóð) – kontrabassi, Tore Ljøkelsøy (Noregur) – trommur
Hljómsveitin fagnar útgáfu plötunnar með tónleikaferðalagi um landið sem er styrkt af Tónlistarsjóði og Menningarsjóði FÍH. Tónleikar í Reykjavík verða föstudaginn 27. september í Fríkirkjunni Reykjavík. Facebook viðburður á tónleikana.
Facebook Viðburður
Ingi Bjarni á Facebook
Umræðan