Tónlistarkonan Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir eða RAVEN gefur frá sér lagið „Half og me” í nýjum búningi.
Lagið kom fyrst út órafmagnað á Spotify og hefur notið mikilla vinsælda. Hrafnhildur ákvað því að útsetja lagið ásamt Arnar Guðjónssyni. Hrafnhildur hefur gefið út nokkur lög áður, eitt þeirra gerði hún ásamt dúettinum September en það heitir „Miracle” og hefur líka notið ágætis vinsælda á streymisveitum. Lagið Half of me er falleg grípandi melódía og Arnar setur á það rokkaðan indie-keim.
Lagið fjallar um það að missa hluta af sjálfum sér í sambandsslitum, textinn er sorglegur en fílingurinn í laginu er kraftmikill. Manneskjan í lagiu horfir til baka á sambandsslit. Hún óskar þess að geta farið til baka og breytt því sem gerðist en verður því miður að sætta sig við það að hin manneskjan, hinn helmingurinn af henni er ekki lengur til staðar.
Umræðan