Í dag, réttara sagt í hádeginu mun DJ – O.D eða Óðinn Valdimarsson eins og hann heitir réttu nafni þeyta skífum á eðal veitingahúsinu Le Kock.
Þið verðið klárlega ekki fyrir vonbrigðum með meistara O.D þar sem hann hefur gert lítið annað en að stúdera old school Hip Hop og Funk síðan að honum fóru að vaxa punghár. Kappinn spilar frá kl 11:45 – 13:15 í hádeginu í dag en einnig mun hann standa við spilara í kvöld og hefst fjörið kl 20:00 og stendur til kl 23:30 ogjafnvel lengur!
Hvað er betra en að mönsa á börger og hlýða á old school Hip Hip í hádeginu, ekkert! Við látum eitt klassískt old school Hip Hop lag fylgja með til að koma fólki í gírinn!
O.D á Facebook
Umræðan