Treat Me Better heitir nýjasta lagið frá tónlistarmanninum Bomarz. Lagið er unnið í samstarfi við Tómas Welding og Viktoríu Kjartansdóttur sem syngja inn á lagið.
Að sögn höfundarins er lagið einhverskonar öfugsnúinn ástardúett en það fjallar um tvo einstaklinga sem eru í sambandi og finnst þeir báðir eiga betra skilið. „Lagið er svolítið sumarlegt, sem er kaldhæðnislegt í ljósi þess að sumarið er auðvitað liðið,“ segir Bomarz. Lagið er enn fremur „trommað“ og í því er strömmað á litinni kassagítar en hugmyndina að laginu og innblástur segir Bomarz vera að miklu leyti komið frá tónlistarmanninum Benny Blanco þótt sjálf lokaútkoman sé kannski nær því að vera í anda Ed Sheeran.
Umræðan