Hljómsveitin Vök sendir frá sér nýtt myndband við titillagið á nýrri breiðskífu sinni sem kom út fyrr á árinu, In The Dark. Það var Ágúst Elí Ásgeirsson sem leikstýrði myndbandinu en hann hefur áður gert tónlistarmyndbönd með Auður, GDRN o.fl.
Ágúst segist reyna að fanga eftir bestu getu unglingaandann í Reykjavík. “Aðal söguhetjan okkar er eins og kvenkynsútgáfan af mér sjálfum þegar ég var átján ára. Ég var sjúklega índí unglingur, átti marga vini í hljómsveitum og mætti á hverja einustu tónleika. Oftast mætti ég bara einn, vitandi að á tónleikunum væri að finna nett fólk til að blanda geði við en innst inni voru við öll bara súper “lame”. Myndbandið fjallar einnig um það að verða skyndilega óstjórnlega kvíðinn á íslenska djamminu, ég hugsa að margir geti tengt við þær aðstæður hér í borg óttans.”
Margrét Rán söngkona og lagahöfundur Vakar segir að þau hafi lengi látið sig dreyma um að gera teiknimyndarmyndband. “Ég er mikill aðdáandi Gorillaz og mig hefur alltaf dreymt um að gera eitthvað í þeim stíl. Það var ekki fyrr en við kynntust Ágústi Elí að við sáum tækifæri til að láta þennan draum rætast. Útkoman er geggjuð. Myndbandið byggir að einhverju leyti á myrkfælni sem ég þjáðist af þegar ég var yngri og Ágúst nýtti sér það þegar hann útfærði myndmálið sem fjallar um augnablik á djamminu í miðborg Reykajvíkur sem margir geta tengt við. Þegar kvíðinn hellist yfir mann er eina svarið að horfast í augu við óttann og um leið að horfast í augu við sjálfan sig. Þannig á myndbandið fullkomlega við textann í laginu.”
Vök koma fram í Valshöllinni á Iceland Airwaves laugardag, 9. nóvember, kl. 22.35 og halda síðan á tveggja vikna Evróputúr í næstu viku þar sem þau hita upp fyrir Of Monsters and Man.
Umræðan