Tónlistarmaðurinn Ragnar Ólafsson sendi á dögunum frá sér lagið Southern Nights. Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri annarri sólóplötu Ragnars.
Platan sem ber heitir Miss var saminn á nokkrum vikum 2017 þegar Ragnar dvaldi á bát sem var á ferð niður Mississippi fljótið stóra. Margir nafnkunnugir tónlistarmenn á íslandi lögðu Ragnari lið við upptökur á laginu. Hann fékk einnig aðdáendur sína útí heimi til að sýngja inn á lagið, og alls taka 52 manns frá 11 löndum og þremur heimsálfum þátt í kórkafla sem má heyra í lok lagins.
Kórupptökurnar fóru þannig fram að Ragnar setti dropbox folder með upptökum á Facebook síðuna sína, og leiðbeiningar um hvernig fólk ætti að fara að því að hljóðrita raddir sínar og senda sér.
Ragnar hefur á undanförnum árum getið á sig gott orð fyrir störf sín með hljómsveitum á borð við Árstíðir, Sólstafir & Sign. Hann er um þessar mundir á þriggja vikna tónleikaferðalagi um Pólland, Þýskaland og Tékkland til að fylgja nýja laginu eftir.
Ragnar Olafsson á Facebook
Umræðan