Þann 4 júlí síðastliðinn opnaði nýr og ferskur “Queer” skemmtistaður/vegan kaffihús sem ber nafnið Curious.
Staðurinn er staðsettur í Hafnarstræti 4 eða þar sem Dubliner var eitt sinn til húsa. Allur staðurinn hefur verið tekinn í gegn frá toppi til táa og er hann í einu orði sagt glæsilegur! Curious er á tveimur hæðum og frá fimmtudegi til laugardags sjá helstu plötusnúðar landsins um tónlistana.
Eins og fyrr kemur fram er Curious einnig vegan Kaffihús en vegan veitingastaður er væntnlegur á neðri hæð hússins. Curious er mikilvæg viðbót fyrir “queer” senuna á Íslandi og er mikil snilld að hafa slíkan stað í miðbæ Reykjavíkur. Rekstrarstjóri Curious er engin önnur en Ragga Holm en hún hefur verið ansi áberandi í íslensku tónlistarsenunni að undanförnu. „Staðurinn er opinn alla daga vikunnar og er fólk velkomið að sækja um að fá að halda viðburði” segir Ragga Holm að lokum.
Curious á Instagram
Curious á Facebook
Umræðan