GDMA var að senda frá sér brakandi ferska plötu sem ber nafnið Minn Almáttugur. Platan samanstendur af 8 lögum og eru þau öll mjög mismunandi, eins og vaninn er hjá sveitinni.
Fjölmargir gestasöngvarar koma fram á plötunni og má þar nefna Kid Isak, Ouse, Viðja Jóna Alla, Tómas Welding og Magdalena en einnig á Eysteinn Bridde tvo takta á plötunni. Platan var einungis tæpa tvo mánuði í vinnslu og hefur platan verið að fá ansi flottar viðtökur.
GDMA á Facebook
Umræðan