Mystery Boy er söngleikur sem settur var upp af Leikfélagi Keflavíkur árið 2018. Söngleikurinn er eftir Gudmundson, sem er listamannanafn Smára Guðmundssonar en Jóel Sæmundsson leikstýrði.
Smári hefur spilað með Klassart og mörgum öðrum hljómsveitum í gegnum tíðina og hún Fríða sem er söngkona Klassart og systir Smára fer með stórt hlutverk í söngleiknum. „Ég er mest sjálflærður í tónlist en núna í seinni tíð hef ég verið að læra upptökustjórn, einnig handritagerð og myndlist sem ég vinn allt undir listamannanafninu Gudmundson.” Söngleikurinn var valin áhugasýning ársins 2018 og sýnd í Þjóðleikhúsinu í kjölfarið.
Sýning Leikfélags Keflavíkur á Mystery Boy eftir Smára Guðmundsson, í leikstjórn Jóels Sæmundssonar, er afar metnaðarfullur, nýr íslenskur söngleikur þar sem fjallað er á óvenjulegan hátt um mikilvæg málefni. Verkið er byggt á reynslu höfundar af því að fara í áfengismeðferð, en útfærslan er afar frumleg og djörf. Fantasíukennd nálgun höfundar við efnið er til þess fallin að gera efnið aðgengilegt og skemmtilegt fyrir nútímaáhorfendur. Um leið er fjallað um sígild viðfangsefni eins og ástina, frelsisþrána, óttann, átök um völd, baráttu góðs og ills, mannleg samskipti og það að upplifa sig á einhvern hátt utangarðs. Tónlistin er skemmtileg og vel flutt af hljómsveit og söngvurum, sem einnig standa sig vel í leik. Leikfélag Keflavíkur fær sérstakt hrós fyrir að ráðast af miklum metnaði í uppsetningu á nýju verki, með nýrri tónlist, þar sem þátttakendur leggja líf og sál í uppsetninguna.“
„Hugmyndin af söngleiknum kviknaði stuttu eftir að ég kom úr meðferð frá Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum desember 2016. Upprunalega var hugmyndin sú að vera með kveðjutónleika fyrir Mystery Boy sem hefur verið lengi mitt hliðarsjálf. Hann fæddist fyrir 18 árum og hefur fylgt mér í gegnum súrt og sætt. Ég var að byrja nýjan kafla í mínu lífi eftir meðferð og ætlaði að skilja við Mystery Boy. Í ferlinu komst ég að því að Mystery Boy verður alltaf hluti af mér og ég þarf að hjálpa honum frekar en að gleyma honum. Þá kviknaði sú hugmynd að gera þetta að söngleik.”
Lögin úr söngleiknum eru komin út og hægt að hlusta á þau á öllum helstu streymisveitum. Það er útgáfufyrirtækið Smástirni sem gefur út. Allar helstu upplýsingar um Söngleikinn Mystery Boy er hægt að finna á heimasíðu Smástirnis, Smastirni.is.
Umræðan