Hljómsveitin Moses Hightower gefur út nýtt lag í dag sem heitir því æsilega nafni Lyftutónlist, en um er að ræða fyrsta lagið af stuttskífu hljómsveitarinnar sem er væntanleg snemma á næsta ári.
Heyra má Rögnvald Borgþórsson leggja Moses þríeykinu til kempulega gítartóna, en Styrmir Hauksson tók upp, ásamt hljómsveitinni, og hljóðblandaði.
Lagið kemur út í aðdraganda tónleika sveitarinnar í Háskólabíói, en hún ætlar, ásamt 5 manna blásarasveit, slagverks- og synthasérfræðingum, að leika viðhafnarútgáfur af lögum sínum föstudagskvöldið 11. október. Lagalistinn verður bútasaumur gamals efnis og nýs og jafnvel rifjuð upp lög sem hafa legið óhreyfð svo árum skipti. Nálgast má miða á tónleikana á tix.is.
Umræðan