Right Where You Belong er nýtt lag frá tónlitarkonunni MIMRU en það kom út 2. janúar síðastliðinn.
Texti lagsins er nokkurs konar janúarsálarmessa, skilaboð frá ástvini til þess sem er að glíma við andlega erfiðleika, kvíða eða þunglyndi. Lag og texti er eftir MIMRU, en MIMRA er listamannsnafn tónlistarkonunnar Maríu Magnúsdóttur.
Lagið fær að njóta sín í minimalískum elektró popp radd-hljóðheim, snilldarlega hljóðhannað af tónlistarkonunni og pródúsentinum Zöe Ruth Erwin. Zöe býr og starfar á Íslandi en er upprunalega frá Los Angeles. Arnar Guðjónsson hjá Aeronaut Studios hljóðblandaði og Addi 800 sá um hljómjöfnun.
MIMRA hefur síðustu misseri gefið út lög í samvinnu við mismunandi pródúsenta og listamenn. Síðast sendi hún frá sér lagið Vindurinn þar sem hún fékk til liðs við sig Stefán Örn Gunnlaugsson, og þar áður lagið Allt eða ekkert í samvinnu við Daða Birgisson. Breiðskífan Sinking Island kom út árið 2017 en MIMRA tók hana upp ásamt fjölda tónlistarfólks, útsetti og hljóðblandaði í London á meðan hún var í tónlistar og upptökunámi við Goldsmiths University.
María starfar sem tónskáld, söngkona og söngkennari og kom síðast fram á ELBJAZZ festival í Hamburg, Jazzhátíð Reykjavíkur og Reykjavík Fringe Festival. Hún var bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2018. María var að eignast sitt fyrsta barn í nóvember svo næstu mánuðir fara að mestu í kósýheit heima með litlu kríli.
Umræðan