Í gær þriðjudaginn 3. desember var tilkynnt um tilnefningar til Kraumsverðlaunanna i ár með birtingu Kraumslistans 2019. Þetta er í tólfta sinn sem Kraumur tónlistarsjóður Auroru velgerðasjóðs birtir Kraumslistann yfir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar, enda fór dómnefndin yfir og hlustaði á rúmlega 350 plötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sit. Dómnefndin mun nú velja þær sex breiðskífur af Kraumslistanum sem hljóta munu Kraumsverðlaunin 2019.
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs, verða afhent venju samkvæmt síðar desember. Alls hafa 56 hljómsveitir og listamenn hlotið Kraumsverðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008, á meðan rúmlega tvö hundruð listamenn og hljómsveitir hafa verið tilnefnd til verðlaunanna með því að komast á Kraumslistann.
Mikil fjölbreytni einkennir Kraumslistann í ár. Þar kennir að grasa tónlist úr öllum áttum og má þar nefna popp og hipp hopp, teknó og raftónlist, rokk, pönk, jazz, tilrauna- og kvikmyndatónlist. Listinn hefur að geyma plötur frá listamönnum sem hafa gert garðinn frægan á alþjóðavettvangi undanfarið ár, t.a.m. tónskáldinu Hildi Guðnadóttur sem tilnefnd er til grammýverðlauna og teknó tónlistarmanninum Bjarka sem spilaði um allan heim á árinu og gaf út fjórðu breiðskífu, sem og spennandi nýliðum á borð við Between Mountains, Gróa, Ástu Pjetursdóttur, Gugusar, Skoffín og Sunnu Margrét.
Kraumsverðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Kraumslistinn 2019 – Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna:
Andavald – Undir Skyggðahaldi
Ásta Pjetursdóttir – Sykurbað
Berglind María Tómasdóttir – Herberging
Between Mountains – Between Mountains
Bjarki – Happy Earthday
Countess Malaise – Hystería
Felix Leifur – Brot
Grísalappalísa – Týnda rásin
Gróa – Í glimmer heimi
Gugusar – Martröð
Hildur Guðnadóttir – Chernobyl
Hist og – Days of Tundra
Hlökk – Hulduhljóð
Hush – Pandemonial Winds
K.óla – Allt verður alltílæ
kef LAVÍK – Blautt heitt langt vont sumar
Korter í flog – Anna & Bernhard Blume (drepa alla fasista)
Kristín Anna – I must be the devil
Milena Glowacka – Radiance
Myrra Rós – Thought Spun
Sideproject – sandinista release party / ætla fara godmode
Skoffín – Skoffín bjargar heiminum
Stormy Daniels – Agi styrkur einbeiting harka úthald hafa gaman
Sunna Margrét – Art of History
Tumi Árnason / Magnús Trygvason Eliassen – Allt er ómælið
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af átta manna dómnefnd sem skipuð er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Arnar Eggert Thoroddsen, Birna María Másdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir. Óli Dóri, Tanya Lind, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir
Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Auk þess að starfrækja Kraum styður Aurora velgerðarsjóður við þróun og menningu hérlendis sem erlendis í gegnum margvísleg verkefni sem er ætlað að örva samfélög á sjálfbæran máta.
Meðal Kraumsverðlaunhafa fyrri ára má nefna: Auður, ADHD, Agent Fresco, Alvia Islandia, Amiina, Anna Þorvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Ásgeir, Baghdad Borthrs, Cell7, Daníel Bjarnason, Elli Grill, FM Belfast, GDRN, GKR, Grísalappalísa, Gunnar Andreas Kristinsson, Gyða Valtýsdóttir, Hafdís Bjarnadóttitr, Helgi Hrafn Jónsson, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit, JDFR, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Misþyrming, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, ROHT, Samaris, Sin Fang, Sóley og fjölmargir fleiri.
Umræðan