Fyrr í þessum mánuði settu Hausar nýju mix seríu í loftið þar sem farið verður yfir það nýjasta í drum & bass. Hausar hafa verið leiðandi afl í drum & bass tónlist á Íslandi í nokkur ár og er serían beint framhald af útvarpsþáttum á Kiss FM.
“Eftir að við fórum af Kiss FM var kominn tími á að gera eitthvað ferskt og ákváðum við því að setja vikulega mix seríu inn á Soundcloud. Við í Hausum erum allir með mismunandi áherslur innan drum & bass og því mun nýr plötusnúður sjá um að droppa mixi í hverri viku með því besta að hans mati,” segir Bjarni Ben, einn af forsprökkum Hausa.
Útvarpsþáttur þeirra á Kiss FM hefur notið mikilla vinsælda síðustu 5 ár en nú er komið að nýju upphafi.
“Útvarpið er enn sterkur miðill og mikil vinna sem fylgir því að vera vikulega í útvarpi allt árið. En með því að færa okkur yfir í mix seríur fær hver plötusnúður meira svigrúm til að koma sinni uppáhalds tónlist á framfæri og kafa dýpra í mixið, ” – segir Bjarni.
Auk þessarar nýju mix seríu halda Hausar regluleg klúbbakvöld fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði á Paloma. Hægt er að fylgjast með mix seríunni á Soundcloud og tilkynningar um viðburði Hausa á Paloma koma inn á Facebook síðu þeirra.
Hausar koma fram á Paloma 7, febrúar. Hægt er að sjá Facebook viðburðinn hér.
Umræðan