Fyrir skömmu sendi tónlistarmaðurinn Benni Hemm hemm frá sér lagið Miklabraut en nú var að koma út glæsilegt myndband við lagið!
Það er enginn annar en Frosti Gringo sem á heiðurinn af myndbandinu og er það vægast sagt geggjað! Myndbandið er allt tekið upp á ruslahaug og skartar benni meðal annars glæsilegri grímu svo fátt sé nefnt. Síðustu misseri hefur hann verið búsettur á Seyðisfirði en hefur nú snúið aftur á mölina. Mikla braut er fyrsta lagið af nýrri plötu Benna sem er væntanleg á næsta ári og sýnir vel að kappinn hefur engu gleymt.
Benni Hemm Hemm á Facebook og Instagram.
Hér fyrir neðan má hlýða á lagið á Spotify:
Umræðan