Snjóbrettakapparnir Baldur Vilhelmsson úr SKA og Marinó Kristjánsson úr Breiðabliki héldu áfram að gera virkilega góða hluti á Norges Cup mótaröðinni, í Noregi um helgina.
Mótið fór fram í Dombås í Noregi og var keppt í brettastíl (slopestyle). Gerðu félagarnir sér lítið fyrir og sigruðu báðir sinn flokk. Marinó sigraði í flokki fullorðina og Baldur í flokki unglinga 18 ára og yngri (U18). Marinó náði að landa sigrinum með sinni bestu ferð uppá 78.00 stig og Baldur sínum sigri með bestu ferð uppá 80.75 stig. Baldur sigraði einnig heildarkeppni mótsins og Marinó náði þar 2. Sætinu. Virkilega glæsilegur árangur hjá þessum ungu og upprennandi snjóbrettaköppum!
Hér fyrir neðan má sjá eitt gamalt en gott snjóbrettamyndband með Marino:
Umræðan