Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína miðvikudaginn 8. maí á Björtuloftum í Hörpu.
Á tónleikunum kemur fram sönkonan María Magnúsdóttir ásamt píanóleikaranum Kjartani Valdemarssyni og Ásgeiri Ásgeirssyni sem leikur á gítar. Leikin verða uppáhaldslög og sálmar í þeirra útsetningum, í bland við ný og eldri jazzlög ástkærra höfunda. Þau muna því reiða fram dýrindis tónleikaprógram sem samanstendur af fallegum lögum íslenskrar tungu.
Alls verða 17 tónleikar í tónleikaröðinni en tónleikadagskráin sem að vanda bæði bæði metnaðarfull og fjölbreytt er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazzlíf þar sem allir straumar og stefnur eiga heima. Múlinn er að hefja sitt sautjánda starfsár en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóðnum og er í samstarfi við Hörpu og Munnhörpuna.
Umræðan