Tónlistarmaðurinn Seint er heldur betur á blússandi siglingu um þessar mundir en hann sendi nýlega frá sér sína fjórðu útgáfu og nefnist verkið einfaldlega IV.
Ekki nóg með það en kappinn var einnig að gera remix af laginu „War” með tónlistarmanninum Richard Z. Kruspe úr þýsku hljómsveitinni Rammstein. Það er mánudagur og eflaust margir þreyttir eftir átök helgarinnar. Á mánudögum ratar oft aðeins rólegri tónlist á fóninn en aðra daga, en þó ekki alltaf! Seint setti þennan frábæra mánudags playlista saman fyrir Albumm og það er á hreinu að hann á eftir að peppa marga í gegnum daginn!
Ekki hika við að skella á play, þetta er snilld!
Seint á Instagram
Umræðan