Við fengum Eyþór Bjarna annan söngvara og lagahöfund hljómsveitarinnar Above The Lights til að setja saman playlistann fyrir Albumm þennan mánudaginn.
„Mánudagsplaylisti, algjörlega frábært hugmynd. Ég er nefnilega kominn með leið á þessum föstudagsplaylistum þar sem allir eiga að vera ógeðslega hressir og í stuði. Maður er nefnilega sjaldnast í einhverju svaka stuði og þá þarf maður þægilega tónlist til að tengja við.”
Eyþór setti þennan skemmtilega playlista saman með það í huga að fólk gæti bara slakað á eftir vinnu eða skóla. Fín tónlist í umferðinni á leiðinni heim. þar sem fólk getur látið hugann reika. Það er algjör óþarfi að vera hress á mánudögum, það þarf nefnilega enginn að vera hress á mánudögum. Enginn pressa, ekkert vesen og maður getur bara leyft sér að vera allskonar.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á Mánudagsplaylistann hans Eyþórs Bjarna:
Umræðan